Jæja nú er liðinn nokkur tími frá síðust færslu
og við systur komnar heim og byrjaðar að vinna og allt er orðið
venjulegt...
Við gerðum kannski ekki alveg jafnmikið og til
stóð síðustu dagana. En við kláruðum minjagripa kaup, fórum á
ekkert safn og ekki á neina stór tónleika heldur.
En við prófuðum barina í nágrenni
Hótelsins og skelltum okkur á einn frægan sem er kallaður "bla
bla" hefur einhver heyrt minnst á hann 
Þar pöntuðum við bjór, einn stóran bjór
og tvö glös. Strákurinn sem þjónaði okkur setti upp stór augu og
sagði okkur að þetta væti einn líter og við værum sterkar stúlkur
að geta drukkið þetta. Við litum bara hvor á aðra og hugsuðum,
stelpur hér drekka almennt ekki svo við spáðum ekki meira í því.
Haldiði svo ekki að þjónninn hafi komið stuttu seinna með
tvær RISA stórar eins líters könnur af bjór og skellti þeim á
borðið hjá okkur og tilkynnti aftur " Very strong girls" við
gersamlega misstum andlitin.
Verð nú reyndar að taka fram að við kláruðum
bjórinn. Við skömmuðumst okkur reyndar nett þarna snemma kvölds
meðal fjölskyldu fólks sem var úti að borða en... hverjum
er ekki sama
En ég stefni á að læra meiri frönsku áður
en ég sný aftur
Flugáætlunin okkar heim var hræðileg, flug frá
Bamako 3:30 um nóttina, lentum í Casablanca 6:?? og flugum þaðan
til London 12:30 Lentum á Heathrow um fimm og flugum svo
um átta leytið til Berlínar, mjög kærkomin lending þar rúmlega
tíu um kvöldið. Rétt tæpur sólarhringur. Þetta gekk reyndar mjög
vel, við svoleiðis grjótsofnuðum á flugvellinum í Bamako. Stór
biðsalur með fullt af bekkjum og sofandi fólki.Ég held að við
höfum sofið þar í tvo tíma eða svo þar sem við hrukkum upp við
tilkynningu um að við skyldum ganga um borð
Það var það sama með flugin, ég sofnaði
fyrir flugtak rumskaði svo svona hálftíma seinna og skyldi ekki
hvað við vorum lengi að taka á loft, og varð alveg stein
hissa þegar ég leit hálfsofandi út um gluggan og sá að við vorum
komnar á loft og tók svo eftir að það var verið
að bera fram morgunmat. Fékk mér matarbita. Svo var bara
vaknað í Casablanca. Það var það sama með restina af flugunum.
Sofnað fyrir flugtak og vaknað við lenfingu. En skelfing var
nú samt gott að fara að sofa hjá henni Eddu í Berlín. Mikið held
ég samt að við systur höfum litið furðulega út við lendingu á
Heathrow flugvelli, í Flip Flops með stráhatta og rykugar uppfyrir
haus
Það var enginn í vélinni okkar sem kom frá Malí með
okkur, hinir komu bara inn í Casablanca, þar sem var rigning.
Í Casablanca fundum við, okkur til mikillar
gleði, mjög svo sárt saknaðra hlunninda, SÚKKULAÐI, í fyrsta
skipti í mánuð. Ég held að ég hafi aldrei fengið svona gott
Toblerone stykki, þetta var hreinn unaður 
Það var rosalega gaman hjá okkur í
Berlín, fórum á eitt safn á dag, stunduðum skemmtileg
kaffihús af krafti og rifjuðum upp Menntaskóla þýskuna. Það gekk
ágætlega jafnvel þó að hafi verið eitlítið djúpt á henni
Allavega, ég er alveg heilluð af Berlín og stefni á að fara
þangað aftur við fyrsta tækifæri. Fæ ég ekki aftur gistingu Edda

Berlín var góður endir á góðri ferð.
Allavega ég held að það sé komið nóg af babli í
bili, enda styttist vaktin mín óðfluga. ekki nema 30 mínútur
eftir.
Takk fyrir fylgdina í Afríku, það var alltaf
jafn gaman að kíkja og sjá kommentin 
Bestu kveðjur Ástý á
BSÍ.